Burney

Það þýðir ekkert að líta til baka því í dag er nýr dagur!!!

01.11.2007 14:31:48 / birnath

Auglýsing


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 15:35:40 / birnath

Hildur Dögg Jónsdóttir

Langaði bara að óska Hildi minni til hamingju með daginn en skjátan er 21. ára i dag.

 

Love you

þín Birna


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 14:22:58 / birnath

wow

hvernig væri að setja inn smá línu hérna....

 Málin standa þannig að við erum flutt til eyja og ætlum okkur að vera þar í eitt ár. Það leggst bara mjög vel í mig nema það að íbúðarmál eru ekki allveg að gera sig hérna hjá okkur. Allir búnir að lofa upp í hendurnar á sér og ekkert gerist. Voðalega fer öll svona óvissa í taugarnar á mér! En maður andar bara inn-út og flýtur með straumnum. 

En ég er byrjuð að vinna sem forfallakennari í BV og líkar bara mjög vel ;) búin með tvo daga og hef það bara fínt hérna... En svo er ég búin að læra að setja steyptar neglur á konur þannig að maður verður að taka það svona aðeins með ;) En get ekki byrjað allveg á því á fullu fyrr en ég er komin með íbúð og þannig ;) pirrandi að vera í vondri aðstöðu að gera neglur... En auglýsi það allt síðar...

En ætla að fara aðeins að lesa yfir kennslubækur sem ég á að fara að kenna á morgun ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 06:25:19 / birnath

Lífið Lífið!!

Já já hver er ekki orðin leiður á því að ég fór á Höfn!!!!

 Líf mitt hefur verið mjög viðburðarríkt síðustu vikur... Allt frá sorg upp í mikla gleði!

Mig langar að segja ykkur frá hetjunni henni mömmu minni sem að var á göngu á Vestfirðinum fyrir um viku síðan. Hún var upp um hæðir og hóla með vinkonum sínum frá eyjum þegar að ömulegur atburður átti sér stað þar sem að hún hrapaði 30 - 40 metra niður bratta hlíð en hún lét það ekki á sig fá labbaði áfram eftir stopp á sjúkrahúsi þar sem að hún komst að því að hún er viðbeinsbrotin! Erum við að tala um hetju eða hetju (eða bara þrjósku??) En þetta er ekki öll þrjóskan því nú hefur hún verið á ferð um landið með yngstu dóttur sinni í heila viku! En sem betur fer er hún komin til systur sinnar í sveitina á Hellu og er áætlunin að vera komin til eyja á þriðjud. Og þið vitið ekki hvað ég er mikið búin að hugsa til hennar!!! Held að þetta endi í magasári! En hún fær stórt og mikið krús frá mér þegar ég kem heim til eyja á miðvikud! En langar bara að segja að mér finnst þú hetja mamma mín og elska þig svo svaðalega mikið.

EN út í aðra sálma! ÉG og Davíð erum að fara heim til eyja á miðvikudaginn!!! og DJÖFLULL hlakkar mig mikið til... Og ég er allveg búin að gera lista yfir hverja ég ætla að fá knús frá því að mig vantar svo mikið sollis núna. Mamma, Sóley, Kjartan, Emma, Amma, Sæsa, Lóa, Óskar,Mörtu, vinkonurnar og pabbann minn þegar hann kemur heim á laugard en hann er á sjó núna kallinn! Svo er það bara þjóðó!! Og ekki lýst mér á þetta veður sem að er að spá á föstud!!! 25 metrar á sek og gernjandi rigning?!?! hvað er þetta!! búið að vera svo gott veður en nei þá þarf það akkurat þessa helga að vera eitthvað ógeð! týpist eða týpist!!!

 En jæja ég ætla að hætta að rífa mig hérna og fara að vinna eitthvað herna! Á bara tvo daga eftir áður en ég fer í 20 daga frí til eyjunar minnar fögru!!

En skrifa kannski smá línu hérna í sumarfríinu adios Birna


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 06:54:30 / birnath

Ónefnd færsla

Langaði bara að setja inn nokkrar vel valdnar myndir frá helginni ;)

Byrjað var á því að keyra úr geggjaðri sól í skýjað veður á asturlandinu :/

Tjaldbúðirnar risu en það kom smá babb í bátinn þar sem að þessi yndismey kom með tjald en tók svo eftir því að það voru engar súlur né hælar með í tjaldpokanum. Þannig að þær stöllur sváfu í ogvodafone tjaldi alla helgina og unu sér bara nokkuð vel.

 

Um kvöldmatarleytið voru konur orðnar nokkuð hífaðar og þótti rukkunar menn og konum það ekki leiðinlegt enda var spurt okkur "Bíddu er klukkan ekki bara rétt átta?"

Auðvita þurftum við að kenna austfirðingum að sungja að hætti eyjamanna. Ég. Hildur, Snædís og Kristína sungum þarna einsöng að miklum fögnuði viðstaddra.

Þegar heim var komið um nóttina var kveikt bál og við grilluðum þessar dýrindis pylsur að hætti Hildar. En þessi gúlli bauð einmitt upp á 10 pyslur sem að kláruðust!

Inga koma svo að sýna okkur hvernig við ættum að hreyfa okkur hérna á Höfna. Humardansinn varð til með þessum dansi sem að kindin mín er að stíga þarna.

Laugardagurinn byrjaði á því að fara í sund og fríska sig aðeins upp. Svo var haldið á pizzustaðinn og fengið sér pizzu þar sem að ég fékk mína pizzu fría þar sem að ég er svo æðisleg manneskja.

byrjað var að sulla í bjórnum um 4:30. Þetta var bara alls ekki leiðinlegt en ég hef aldrei sitað svona lengi á sama staðnum en við sátum þarna að drekka, spjalla og syngja til 00:00...

Þegar líða fór á kvöldið þá fórum við úr bikiníinu og í lopafatnaðinn.

Loksins kom Raggan mín en hún þarna er hún á sínu yfirráðarsvæði.

Fórum á ball með Dans á rósum. Þar var dansað, drukkið, hrofa á BJÚTÍFÚL stráka sem að tóku allt í einu upp á því að klæða sig úr að ofan mmmmm....

Eins og sést á þessari mynd þá eigum við Vestmanneyingar okkar dans sem að fór á kostum þetta kvöld.

Á sunnudeiginum komum við svo við á Jökulsárlón og það er bara nokkuð flott þarna eins og sést á myndinni þó svo að fegurð okkar skyggi mikið á ;) Love you stelpa ;)

Þetta var bara geggjuð ferð sem að ég á eftir að lifa á lengi. En takk stelpurnar mínar fyrir helgina.

En ég vil benda á að það eru fleiri myndir inn á

http://raggadilja.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album23

og

http://picasaweb.google.com/hildurdjons/HumarhT07MeBirnu

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 15:15:16 / birnath

Humarhátíð á Höfn

Þá er maður komin heim af þessari svaðalegu djammhátíð!!! Þetta var algjör snilld!!! Enda er maður ekki í sambandi hérna í vinnunni. Fórum þarna á föstudaginn tjölduðum, grilluðum, sungum og djömmuðum. Laugardagurinn var mjög slappur fyrri part en svo var maður komin í bjórin um hálf 5! Við sátum líka á sama stað að drekka í GEGGJUÐU veðri frá hálf 5 til miðnættis!! það var bara gaman! Svo var kveldið bara djamma, ball og éta ;)

 Vá steikt blogg því að ég er ekki alveg að nenna að skrifa eitthvað hérna  ;)

 En það eru bara eyjar næstu helgi og er mig farið að hlakka smá mikið til ;)

Kv Birna


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 12:28:18 / birnath

Lífið er ekki alltaf dans á rósum!!!

Ást

byrjar með kossi og endar með tárum.

Ást byrjar með brosi, stækkar svo í koss og endar með tárum.

Ekki gráta yfir neinum sem grætur ekki yfir þér.

Traustir og góðir vinir eru erfiðir að finna en það er erfiðara að fara en algerlega ómögulekt að gleyma.

Þú getur aðeins farið eins langt og þú villt fara, gerðir þinar eru betri en 1000 orð.

Það erfiðasta sem hægt er, er að sjá einnhvern sem þú elskar, elska einhvern annan.

Ekki láta eitthvað slæmt úr fortíðinni halda aftur af þer því þú ert að missa af öllu því skemmtilega sem er í nútiðinni.

Lífið er svo stutt, að ef þú lítur ekki I kring um þig stundum og stundum gætiru misst af því.

Vinir eru eins og fjögurra blaða smárarnir, erfiðir að finna og mjög heppin þegar hann finnst.

Sumir gera heiminn sérstakann bara með því að vera í honum.

Bestu vinir eru systkinin sem Guð gleymdi að gefa okkur, ef að það særir að líta aftur og þú þorir ekki að líta fram á við þá geturu litið til hliðanna og vinur þinn er þar.

Alvöru vinátta endar aldrei.

Alvöru vinir eru til eilífðar.

Vinir eru eins og stjörnur, þú sérð þá ekki alltaf en veist að þeir eru alltaf þar.

Ekki vera leiður því þú veist aldrei hver verður ástfanginn af brosinu þínu.

Hvað gerir þú þegar eina manneskjan sem getur hætt að láta þig gráta er sá sem lét þig fara að gráta.

Enginn er fullkominn þangað til þú verður ástfangin af honum Allt er gott á endanum.

Ef eitthvað er ekki gott þá er það ekki endirinn.

Margir geta farið inn og út úr lífi þínu en aðeins vinir og þeir sem þér þykir vænt um skilja fótspor eftir í hjartanu þínu .

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.

Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast annarstaðar

Þótt útlitið sé svart þá vottar alltaf smá von í glætuni.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 13:41:53 / davidth

Ein stutt

Jæja kominn tími til hjá mér að henda inn eins og eini færslu. Förum til Eyja á föstudaginn og tilefnið er árgangmót hjá árgang '83. Verður örugglega ægilega mikið stuð. Ég býst við að við Birna förum aftur til Rvk á mánudeginum. Ég er búinn að sækja um að fá að vinna í Eyjum í ágúst, þá verð ég í sumarfríi hér í borginni og ætla mér að vera í Eyjum. Og er að vona að ég fái vinnu hjá gömlu félögunum í Eyjum. Rifja upp gamla tíma, hótel mamma og solleiðis. Það verður þá fjör á heimilinu í Foldahrauni, allir heima, pabbi á að koma í land á sunnudeginum á þjóðhátíð, já á sunnudeginum, og verður hann í fríi í allan ágúst. En hvað er málið að koma í land á sunnudeginum!!!! Það á að skylda eyjabátana að koma í land síðasta lagi miðvikudeginum fyrir þjóðátíð. Og svo á knattspyrudeildin hjá ÍBV að fara fram á það að fá alltaf heimaleik á miðviku- eða fimmtudeginum fyrir þjóðhátíð, þá eru allir Eyjamenn heima og þá yrði stemmning á leiknum. En það er margt sem maður vill. En annars er voðalega lítið að frétta héðan í Safamýri af okkur. Bara vinna og æfa og sofa, já og borða...

 Bið að heilsa í bili Kv Davíð


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 11:25:51 / birnath

Sumarfrí!!!

þá er ég að verða búin með fyrri hluta sumarfrísins mín og auðvita er kom sólin á síðasta deigi! ;)

En ég er búin að bralla ýmislegt í sumarfríinu m.a fór til eyja á sjómannaball sem var hrikalega skemmtilegt og gerði met í marblettum og drykkju á jagemaster/burn!! mmm... Svo kom Davíðinn á mánudeiginum og eyddum við fjórum dögum saman i eyjum! Ég hitti mínar yndiskæru vinkonur sem að ég fann að ég saknaði ekkert smá mikið!!! og auðvita fjölskylduna ;) Hitta Ástrósu sem að var að koma heim frá Marmaris og ég saknaði hennar svolítið bara ;) OG takk fyrir mig sæta mín það voru bara eitt stykki silver puma sem að biðu mín þegar að hún kom heim :lol: Svo núna á laugardaginn skellti ég mér í rafting í hvítá með vinnunni og þetta var einn skemmtilegasti dagur sem að ég hef upplifað lengi lengi!! fór að heiman fyrir 13:00 og kom ekki heim fyrr en Davíð náði í mig niðrí bæ um 5 - hálf 6 um morguninn...... ;) Svo er maður bara búin að vera að taka til og gera fínt hérna heima hjá sér!

Svo eru bara næstu helgar bara planaðar hjá manni.... Það er útskrift hjá Ástrósu á laugardaginn og Davíð fer í löggupartý svo helgina eftir það þá er árgangsmót hjá Dabba í eyjum og auðvita kíkir maður þá á eyjunna fögr SVO helgina eftir það er Humarhátíð á Höfn sem að við gellurnar ætlum ekki að láta okkur vanta ;) Þannig að Júní mánuður er full bókaður hjá mér ;) sem er ekkert nema snilld því að síðasta sumar gerði ég akkurat ekki neitt nema að sitja inni á skrifstofu og vinna sem að var :(

En ætla að láta þetta duga í bili og fara út að gera eitthvað sneddí ;)

Kv Birna litla brjálaða


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 08:24:56 / birnath

Sumt fólk er FÍFL!!!!

Var að lesa Blaðið og Moggan í morgun og rak þar augun í forsíðufrétt í Blaðinu en það var um misnotkun á ungri stúlku. HVERNIG GETUR ÞETTA GERST EÐA FORELDRAR AÐ GERA SVONA VIÐ BÖRNIN SÍN?!?!?! Það er þannig að faðir hefur verið að mistota fatlaða stelpu sína í fjölda ára!! Hann var dæmdur fyrir þetta en lét sér ekki segjast og gerir þetta aftur við hana einhverjum árum eftir að hann er dæmdur! ÉG bara spyr afhverju fær hann að vera svona mikið með dóttur sinni? Og ekki segja mér að móðir stúlkunar hafi tekið þennan óþverra að sér aftur?!?! Mér finnst bara að foreldrar sem að gera svona meiga ekki hafa forræði yfir börnum sínum eftir svona og fá að hitta þau takmarkað. ÉG veit að það er erfitt á svona litlu landi en samt þetta á ekki að gera endurtekið sig! Ef ég mætti ráði þá ætti að stinga öllum svona mönnum inn og svo reka þá úr landi!! jiiijú! ógeðslegt! Maður fyllist bara einhverri reiði þegar fullorðið fólk er að misnota börn! pfff...

 

En annars yfir í allt aðra sálma þá er ég bara ein í kotinu og er það bara fínasta tilbreyting þó svo að maður finnur allveg að manni langar ekkert voðalega að missa Davíð sinn ;) En hann er núna í Denmark með löggunemunum sínum. Þau eru að skoða aðstæður dönsku lögreglunnar. Sem er mjög spennandi en á meðan er Birna bara að dúlla sér við að vinna, æfa, borða hollan mat og vera í afslöppun í SPA´-inu mínu! Var í pottinum í um klt eða meira í gær vegna þess að yndislega þjálfarinn minn tók líka þessa svaðalegu fótaæfingu í gær. EN ég í dag er ég ekki með neina harðsperur eða finn allavegana ekki fyrir þeim enþá ;) sem er mjög gott því að ég síðustu viku þá gat ég ekki labbað vegna þess hve stirð ég var! En það er allveg ótrúlegt hvað manni finnst svona ótþægilega gott að vera með harðsperur.

Svo erum við að fara heim á laugardaginn og ætlum að vera fram á þriðjudag ;) sem er bara kósý. Það er eitthvað svo spennandi alltaf að fara heim en svo þegar maður er komin heim þá er ekkert gaman af því að vera heima en svo þegar maður á að fara til RVK aftur þá langar manni það ekki!!! Blendnar tilfingingar alltaf hreint ;)

Jæja ætla að fara að segja þetta gott í bili og fara að vinna eitthvað hérna á þessu skipi ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 08:24:43 / birnath

jiiii dúdda mía!!!!

ÉG held að það sé komið að mér að gera smá færslu!!!!

Tengdó er hérna í bænum en þau voru að koma frá London í gær úr svaka skemmtiferð ;) hefði sko allveg verið til í að vera hjá þeim!! ekki leiðinlegt fólk það á ferð :) En við skelltum okkur og náðum í þau í gær og komu þau alsæl út eftir að hafa beðið óra tíma eftir okkur vegna þess að við vorum að skoða bíla híhí.... Þegar í bæin var komið þá fórum við Lóa að versla ljós í íbúðina og fundum við líka þessi flottu ljós en það er eitt að þau eru svo sterka að það þarf að kaupa dimmer og minni perur sem að er bara flott því það er svo kósý að hafa svona dimmer úúúú.... Heyrðu á meðan að við fórum í þennan leiðangur skellti Davíð sér með pabba sínum að kaupa eitt stykki bíl handa mér!!! og ekki að verri endanum heldur bara eina sanna DRAUMABÍLINN minn!!!! vá ég átti bágt með mig þarna í matarboði sem að ég var í heima hjá ömmu hans Davíðs!!! En þetta er hina eini sanni Avensis nýja lúkkið svona brúnn á lit! HANN ER MERGAÐUR!!!

En nóg um mont! en júró að nálgast og hef ég ekkert verið neitt að hlusta á önnur lög og finnst mér okkar lag eitthvað svo dautt :( allavegana ekki að fýla þetta.. en auðvita horfir maður á þetta í góðra vina hópi. Svo er hún Hildur mín að koma í reykjavíkina og ekki var ferð hennar síðast leiðinleg... Við skemmtum okkur líka svona vel ;)

En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili vegna anna í vinnunni *Hóst*

KV Birna mega Avensis pæja


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 03:51:46 / davidth

Esjan lögð

Gleðilegt sumar. Við Birna byrjuðum sumarið á að rölta upp Esjuna. Það var bara fínt, munum kannski næst að fara í skóm sem eru ekki alveg sléttir. Held að það sé betra. Það var partí hjá Birnu á laugardagskvöldið hjá Birnu þar sem allt það nýjasta í tískunni í dag var aðal. Að minnsta kosti fannst stelpunum sem mættu það. Það var dálítið skrautleg að sjá sumar munderíngurnar sem stelpurnar voru í. En alltaf eru þær vel til hafðar. Næstkomandi föstudag verður vaktarpartí hjá vaktinni minni og á að skella sér á Sálarball, hvað annað. Verðu alveg feiknar stuð býst ég við.

Við Birna þurfum að fara að líta í kringum okkur eftir nýjum bíl. Þurfum að skila Focusinum í maí. Erum ekki alveg með það á hreinu hvað við eigum að fá okkur. Einhverja hugmyndir? Svo þarf maður að spá í hvað hann má vera dýr. Því ekki ætla ég að þurfa bara að vera að vinna og vinna bara til að borga af bíl og íbúð. Maður verður nú að eiga meira líf en það.

Það fer að líða að kosningum. Maður er svona að velta fyrir sér hvað maður eigi nú að kjósa. Mér finnst eitt vera að gleymast í kostningabaráttu flokkanna, en það eru málefni útlendinga. Það er eins og enginn flokkur þori því. Persónulega finnst mér of auðvelt fyrir útlendinga að fá að koma inn í landi og dvelja hérna til lengri tíma séð. Svo er ekkert mál þó þeir séu að brjóta af sér. Það á bara að senda þá heim með fyrsta flugi eftir að búið er að dæma þá fyrir afbrot. Nei það má ekki, því þá erum við bara rasistar. Fáum við bara alla útlending inn í landið. Ég ætla ekki að segja meira því þá gæti maður verið titlaður sem rasisti. Ekki gott. En svo spyr maður sig hvort að það breytist eitthvað eftir kosningar ef núverandi ríkisstjórn falli. Snýst þetta þá bara ekki við. Minnihlutinn er á móti öllu sem meirihlutinn gerir þrátt fyrir að þeir myndu gera það sam ef þeir væru við völd. Pólitík er bara rugl. Svo finnst mér alveg merkilegt að allir flokkarnir lofa öllu fögru fyrir kostningar, en ætli fólk viti að það sem flokkarnir lofa þurfa þeir ekki að standa við. Þannig að auðvitað lofa flokkarnir öllu sem menn vilja heyra bara til að komast til vald og svo fer bara lítið fyrir framkvæmdum á loforðunum. En svona er þetta víst bara. En jæja nóg af þessu rugli.

 Maður þarf að fara að drífa sig til Eyja. Lagt síðan maður hefur farið, og langt síðan. Þarf að fara að finna einhvern heppilegan tíma.

En þangað til næst, Bless           Hvernig væri samt að Birna yrði aðeins duglegri hérna á síðunni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 21:58:52 / davidth

Allt að koma

 Sælar. Jæja þá er þetta allt að koma hérna hjá okkur í Safamýrinni. eru alveg að klára að ganga frá íbúðinni og gera hana heimilislega. Alltaf samt eitthvað sem þarf að fínpússa. Ætla nú að bíða þangað til að pabbi komi í land og upp á land til að hengja upp ljós og tengja þau. Það er einhver rúmur 1/2 mánuður. Er bara í fríi núna. Er búinn að vera í fríi síðan á sunnudaginn og verð fram á fimmtudagskvöld. Er bara nokkuð gott.

Er búinn að panta í Herjólf fyrir verslunarmannahelgina, vera öruggur með ferð. Það er að minnsti kosti á áætlun að koma til Eyja 1.ágúst, miðvikudegi. Svo verðum við eitthvað lengur eftir Þjóðhátíð, enda eigum við bæði frí í ágúst. Það er spurning hvort maður atugi ekki með vinnu í Eyjum í ágúst.....

Þangað til næst.  Kv. Davíð

Binni ertu búinn að kaupa tuðru???


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 08:23:59 / davidth

Safamýri

Jæja góðan daginn. Þá erum við Birna flutt úr Skipasundi í Safamýrina. Hjödda og Halli Geir komu í borgina og máluðu og svo fluttum við á fimmtudeginum. Ég vil koma á ólýsanlegu þakklæti til þeirra fyrir hjálpina. Við erum ennþá að koma okkur fyrir, setja upp skakka skápa, kommóðu, keyptum gardínur í gær sem Birna þarf að sauma, ég keypti borvél í gær og tek ég að mér að bora í veggi og festa myndir og svolleiðis fyrir fólk, bara að hafa samband. Þannig að þetta gengur allt. Verður allt komið í gott lag fyrir laugardaginn, því þá verður fyrsta, og ekki það síðasta, partýið haldið á Safamýri 85. En stelpurnar í afgreiðslunni í Laugum eru að hafa eitthvað ljótukjólapartý.

 Annars er nú lítið að frétta hjá okkur þessa dagana. Bara vinna og dúlla sér í íbúðinni. Páskarnir voru bara fínir, við Birna borðuðum eitt páskaegg saman og slöppuðum bara af og höfðum það gott. Það er vonandi að aðrið hafi bara haft það gott yfir páskanna. Láttum þetta nægja í bili.

Kv. Davíð


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 08:41:51 / birnath

Hvernig væri að taka eitt blogg á þetta?!?!?!

Þá er komið að mér að henda smá færslu hérna inn!!! komin með leið á 1234 færslunni hans Davíðs!

En það sem að á daga mína hefur drifið er afmæli, djamm og edrúmennska!!! (við misjafnan fögnuð) Svo erum við að fá íbúðina okkar á morgun og hlakkar mig mikið til þegar allt þetta fluttnings stand verður yfirstaðið! Mamma og co að koma í dag til þess að hjálpa okkur að rumpa þessu af en planið er að flytja inn á fimmtudaginn. Svo verður haldið smá innflutningsveisla með því að fara heim til eyja um páskana! (ef að Davíð minn verður að vinna laug og sunn)

En ég komst að nokkrum góðum pikkup línum um helgina sem að fengu mann allveg til þess að hlægja!!!

" þú ert svo heit að ég þori valla að snerta þig"

" þú myndir fullkomna kvöldið ef að ég fengi nafn og símanúmer hjá þér"

"Ég held að okkur sé ætlað að vera saman í kvöld!

HVAÐ ER AÐ STRÁKUM!! Ég er að segja ykkur það að pikkup línur eru ekki að gera sig í dag!?!?! eða er það?? allavegana ekki hjá mér takk fyrir! Eini pjakkurinn sem má segja svona er hann Davíð þegar hann er í stuði! híhí....

En jæja ætla að halda áfram að vinna og vera með bros á vör á meðan aðrir eru með skeifu og yfirgang vegna þess að þeir komast ekki inn!!! ADIOS!

                                          

                                   


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan